Pocket Wizard MiniTT1 Transmitter fyrir Nikon

Tag: Aukahlutir, Fréttir, Leifturljós, Tækni
Pocket Wizard MiniTT1 Transmitter

PocketWizard, sem er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á þráðlausum stjórntækjum fyrir leifturljós, ljósmæla  og myndavélar, hefur nú tilkynnt að MiniTT1 sendirinn og FlexTT5 sendir/mótakari fyrir  Nikon DSLR myndavélakerfi er nú loks fáanlegur. Sala á Nikon útgáfunni er áætluð að hefjist í Bandaríkjunum í Janúar. Sambærilegir sendar / móttakarar fyrir Canon eru þegar fáanlegir.


Eftir miklar pælingar og þróun þá er PocketWizard nú á loka stigi prófanna á hinu eftirsótta og löngu umbeðna ttl stýrikerfi fyrir Nikon myndavélar. Um leið og MiniTTl er komið á markað eiga Nikon ljósmyndarar að geta notið þessa að stjórna leifturljósum sínum á einfaldan máta með  MiniTT1 Transmitter og FlexTT5 Transceiver. Þessir þráðlausu sendar sem senda á útvarpsbylgju gera ljósmyndurum auðveldar fyrir þegar nota á leifturljós sem ekki eru áföst myndavél.


Með því að sameina TTL sjálfvirkni í myndavélum og  PocketWizard tækni ættu myndir teknar með frístandandi leifturljósum að verða skilvirkari og betri en áður í hvaða veðurskilyrðum og umhverfi sem er. Þráðlausir sendar sem þessir geta sent merki fyrir horn, gegnum gler og er hægt að nota utandyra, jafnvel í sterkri sól.


Hægt er með MiniTT1 Transmitter og FlexTT5 Transceiver að stjórna einu eða fleirum leifturljósum með Nikon i-TTL á hraða allt að 6/fps eða hraðar.  Þá er einnig vert að geta þess að firmware, er uppfæranlegt og ætti að sjá til þess að sendarnir eigi sér langan líftíma þrátt fyrir hraðar tæknibreytingar í ljósmyndaheiminum.


Dave Schmidt, Sölustjóri hjá PocketWizard segir að sendarnir séu fullkomnir fyrir “auglýsingaljósmyndara , brúðkaupsljósmyndara, íþróttaljósmyndara, tískuljósmyndara og marga fleiri. Þetta þráðlausa sendikerfi frá PocketWizard’s gerir erfiðar lýsingar enn auðveldari en áður og sér til þess að það sem ekki var hægt að lýsa áður er nú auðvelt að gera með undraverðum árangri. Nikon hefur skapað einstaklega gott leifturljósakerfi og með því að bæta MiniTT1 og FlexTT5 í safnið hafa ljósmyndarar óendanlega möguleika í lýsingu. "

 

Heimasiða Pocket Wizard