Sissa í Ljósmyndakaffi

Sissa í Ljósmyndakaffi


Verk og ferill Sissu ljósmyndara, Sigríðar Ólafsdóttur, verða til umfjöllunar í Ljósmyndakaffi sem Ljósmyndasafn Reykjavíkur efnir til á morgun klukkan 12. Ljósmyndararnir Leifur Þorsteinsson, Bára Kristinsdóttir og Guðmundur Ingólfsson ræða við Sissu og gesti.

Sissa lærði þroskaþjálfun áður en hún snéri sér alfarið að ljósmyndun og fór til Bandaríkjanna árið 1976 í ljósmyndanám í Brooks Institute í New York. Sissa rak ljósmyndastúdíó bæði á Hverfisgötunni, Lindargötunni og síðan Laugavegi og rekur nú Ljósmyndaskólann við Hólmaslóð.



Í Ljósmyndakaffinu sýnir Sissa bæði eldri myndir og nýjar, sem hún stefnir á að sýna í sumar.  Í kynningu segir að sýningin sé hálfgerð dagbók með myndum, sem Sissa hefur tekið frá því vorið 2010.  Gömul box frá árunum 1800-1930 notar Sissa sem ramma um verkin, „ramma með lífsreynslu“ eins og hún orðað það sjálf. Í boxunum hefur hún jafnframt komið fyrir ljósum sem gefur myndunum ákveðna dýpt. Sissa hefur einnig unnið að nýrri portrettmyndaröð í svokölluðum „photobooth stíl“ sem hún tekur með Hasselblad myndavél.