TS3 fyrir járnkalla og fjallageitur
Hvort sem þú ert að æfa fyrir járnkallinn og þarft myndavél sem þolir sull og svita eða bara vilt hafa með þér létta vél þagar þú villist á næsta fjalltopp þá er tilvalið að veita athygli hinni nýju myndavéla frá Panasonic sem hlotið hefur nafnið Panasonic LUMIX TS3 því ef þú villist ætti hún að koma þér á sporið á ný, en ekki nóg með það hún ætti að koma í veg fyrir að skýjaglópar fari sér að voða því hún hefur hæðarmæli auk þess að vera vatnsþétt og með innbyggt gps
LUMIX DMC-TS3, er samkvæmt Panasonic sérstaklega hönnuð fyrir útivistarfólk sem vill eiga möguleika á að ná gæða ljósmyndum og myndskeiðum í HD upplausn að 1920 x 1080 px, Myndavélin er byggð í hulstur sem þolir harðneskju og hefur innbyggt allt sem villugjarna, veðurbarna náttúruvillinga vantar eins GPS fúnksjón, áttavita, hæðarmeter og loftvog. Ofan á það hefur hún 12.1 megapixel upplausn og er vatnsheld niður á 12m skyldir þú detta í einhverja ánna. En höggið þolir hún vel sé það ekki meira en tveir metrar. Allt þetta verður að gerast innan skynsamlegra marka veðurfræðinnar því hún þolir ekki meira en -10 gráður C en þeim mun meiri hita og er rykheld skyldir þú ráfa um í villu í eyðimörk.
Þeir sem ekki geta beðið eftir því að stökkva út í búð og ná sér í eina svona vél verða þó að sitja á hnum stóra sínum því ekki er von á henni á markað fyrr en í mars.





