Vilt þú kaupa stolna myndavél

Tag: Fréttir, Myndavélar, uppboð
Mamiya RZ 67Pro ll

Það er enginn sem með góðri samvisku getur tekið myndir á myndavél sem er stolin. Nú hefur þú hinsvegar tækifæri til þess. Það er svolítið merkilegt að geta með góðri samvisku keypt stolna myndavél af lögreglunni í þokkabót. En það er staðreyndin í þessu tilfelli þar sem hér er um að ræða uppboðsvef með óskilamuni frá lögreglunni í Bandaríkjunum. Muni sem enginn hefur hirt um að sækja eða eigandinn ekki fundist.


Allir kannast við uppoð lögreglunnar á íslandi á óskilamunum sem stundum hrannast upp þar sem menn hafa hvort eð er fengið þá endurgreidda útúr tryggingunum og vilja því ekki vita af gömlum græjum einhverstaðar.


Fyrrum lögreglumönnum í Bandaríkjunum datt það snjallræði í hug að opna uppboðssíðu og taka það að sér fyrir hönd lögreglunnar að bjóða upp óskilamuni. Hér er stórsniðugt viðskiptamódel á ferð og það má eiginlega segja að þú getir ekki verið tryggari með seljanda og öryggi netviðskiptanna ætti að vera á hreinu.


Nú er bara að skella sér og bjóða í eins og ein myndavélagleraugu eða Mamiya RZ 67Pro ll


 


http://propertyroom.com/