Fuji skapar myndræna framtíð
Segja má að hin nýja smámyndavél sem Fuji hefur nú sent frá sér skapi nýja vídd í ljósmyndun. Ekki einvörðungu þegar litið er til þess að vélin er sérhönnuð til þess að taka ekta þrývíddarmyndir heldur hefur hún á að skipa ýmsum öðrum möguleikum sem gera þessa vél að stórskemmtilegu leiktæki.
Vélin fylgir eftir fyrstu þrívíddarvélinni sem Fuji sendi frá sér í September 2009 og heldur í þá hefð að vera ekta þrývíddarvel þar sem hún er búin tveimur linsum og tveimur myndflögum. Þar af leiðir notar hún ekki sömu tölvutækni og aðrar vélar við að búa til þrývídd heldur byggir á gamlgróinni hefð þrývíddarmynda.
Það sem þó gerir þessa myndavéla að enn skemmtilegra tæki en margar aðrar er sú staðreynd að þar sem hún er búin tveimur myndflögum sem og tveimur linsum opnast ýmsir möguleikar í hönnun sem Fuji hefur nýtt sér til hins ýtrasta. Þannig geta ljósmyndarar nú tekið hvort sem er með gleiðlinsu eða aðdráttarlinsu og það á sama tíma.Eða tekið með mismunandi litastillingum á myndflögu og þar að auki með mismunandi ljósnæmi. Hér er því fátt annað en sköpunargleðin sem heftir, því ofan á þetta er svo hægt að taka upp myndskeið í þrívídd.
Ekki skal sagt um hvernig er að ramma af myndefnið þegar þarf að hugsa um tvær brennivíddir á sama tíma ne það mun koma í ljós í September þegar myndavélin kemur á markað.





