Ljósmyndarafélag Íslands
Ljósmyndarafélag Íslands var stofnað 1926 af átján ljósmyndurum sem störfuðu flestir í Reykjavík. Stofnendur eru Carl Ólafsson, Jón J. Dahlmann, Jón Kaldal, Loftur Guðmundsson, Magnús Gíslason, Magnús Ólafsson, Ólafur Oddsson, Ólafur Magnússon, Óskar Gíslason, Pétur Brynjólfsson, Pétur Leifsson, Sigríður Steffensen, Sigríður Zoega, Sigurhans Vignir, Sigurður Guðmundsson, Steinunn Thorsteinsson, Sæmundur Guðmundsson og Þorleifur Þorleifsson. Félagið var stofnað fyrst og fremst sem hagsmunafélag og beitti sér fljótt fyrir því að gerð yrði lágmarksgjaldskrá.




