Hahnemühle og Harman í samstarf.
Hahnemühle og Harman fyrirtækið sem stofnað var úr rústum hins gamalgróna Ilford fyrirtækis, hafa tekið höndum saman um framleiðslu á pappír ætluðum fyrir bleksprautuprentara. Pappírstegunirnar verða sjö talsins og verður spennandi að sjá útkomuna frá þessum fyrirtækjum sem hvort um sig eiga langa sögu í gerð pappírsvöru fyrir listamenn.
Hahnemühle á sér yfir 400 ára sögu í gerð pappírs fyrir myndlistarmenn og hefur verið um árabil eftirlæti íslenskra grafíklistamanna og vatnslitamálara.
Harman er eins og áður sagði byggt á grunni hins gamla fyrirtækis Ilford og nefnt eftir stofnanda þess. Harman framleiðir í dag allar Ilfordvörur til svart hvítrar myndatöku og framköllunnar en litdeild Ilford var seld til Swiss. Ásamt þessu framleiðir Harman, Kentmere pappírinn þekkta sem bæði er til fyrir gamalgróin myrkraherbergi og bleksprautuprentara, sem og pappír undir egin merki.
Pappírstegundirnar sjö sem framleiddar eru:
Matt Cotton Smooth
Matt Cotton Textured
Gloss Art Fibre
Gloss Art Fibre Warmtone
Gloss Baryta
Gloss Baryta Warmtone
Canvas
Longevity
Heimasíða hinnar sameiginlegu framleiðslu Harman og Hahnemühle





