Nov
20

Listin að þekkja sinn vitjunartíma

Tag: áhugaljósmyndarar, réttindi
Listin að þekkja sinn vitjunartíma

Það er engin tilviljun sú orrahríð sem staðið hefur yfir í umræðunni um ljósmyndun og framtíð hennar nú undanfarið. Til eru einstaklingar sem haldnir eru slíkri vanmáttarkennd í sköpun sinni að þeir geta ekki eirt öðrum þess að hafa það sem þeir ekki hafa. Slíkir einstaklingar hafa fátt eitt fram að færa og nýta því öll tækifæri til að rífa niður það sem aðrir hafa áður uppbyggt.

í slíkum tilvikum sem með þessa einstaklinga, getur það reynst nauðsynlegt að skella sér í skítagallann og moka flórinn. Ég lét mig hafa það að skella mér í skítkastskeppni við viðkomandi aðila til þess að sýna fram á að þeim gengur ekki gott eitt til. í versta falli gengur þeim það eitt til að eyðileggja starfsumhverfi ljósmyndunar.

Ákveðnir aðilar innan HUL og þeirra nánustu ráðgjafar haf því miður enga framtíðar sýn er kemur að ljósmyndun aðra en þá að geta boðið upp á lélega ljósmyndun á ódýru verði. Þeir hafa enga löngun til að fara inn í ljósmyndun til þess að verða frambærilegustu ljósmyndarar landsins. Þeir hafa enga sýn á það að lyfta ljósmyndun sem listgrein á stall og í flestum tilvikum neita þeir því að ljósmyndun eigi að teljast sem  iðngrein hvað þá listgrein .
Þeir hafa engann metnað og engann áhuga til að gera vel ljósmyndasamfélaginu til framdráttar. Þeir eru eitt stórt ÉG og sem frek spillt einbirni öskra þeir ÉG VIL.

Þessir örfáu aðilar smita því miður út frá sér til yngri aðila sem ekki hafa kynnt sér málin vel, en það sem er verra er að þeir stöðva umræðu þeirra áhugaljósmyndara sem vilja breytingar en eru tilbúnir til að skoða málið frá öllum hliðum og ræða það hvernig best verður staðið að slíkum breytingum.

Þessi fullyrðing mín sýnir sig best í því að meðan ég svara þeim með skít og skömm þá æpa þeir hástöfum, en um leið og ég legg fram ýtarlegan málefnalegan lista yfir þau málefni sem skoða þarf varðandi breytingar, þá þagna þeir eða reyna að snúa út úr orðum mínum, vegna þess að þeir hafa ekkert málefnalegt fram að færa.

Megnið af þessum aðilum eru ekki ungt fólk sem ekki veit betur,  heldur heimtufrekir karlmenn um miðjan aldur sem komnir eru fram yfir bestu og frjóustu ár í sköpun. Þeir hafa ekki enn náð tökum á miðlinum, hengja sig helst í tækniatriði sem þeir reyna að skilja, því sá eiginleiki að búa til ljósmynd eða skapa stemningu aðra en úlfúð er þeim ekki í blóð borin, né ná þeir að höndla.

Ljósmyndaumhverfið er mjög víðtækt umhverfi og því þarf að stíga varlega til jarðar í öllum breytingum svo ekki beri allir skaða af. Það þarf að skoða málið með opnum huga frá öllum hliðum. Hér verða þeir sem vilja komast að kjötkötlunum sem og þeir sem nú súpa úr þeim að gjöra svo vel og brjóta odd af oflæti sínu og tala saman með opnum huga.

Verði það ekki gert munu þeir verða ofaná sem hæst hafa og helst vilja sjá ljósmyndun dauða í skítnum. Það er engum til heilla


Með vefsvæði þessu langaði mig í upphafi til að reyna að koma á íslensku umhverfi fyrir ljósmyndara á öllum stigum þar sem fluttar yrðu fréttir sem og gerð yrði skil á sögunni og tækninni á Íslensku. Vefsvæði þar sem íslenskir ljósmyndarar, áhuga eða atvinnu , gætu komið á framfæri sjálfum sér sem og frétttum af starfi og sínum skoðunum ef þeir vildu.
Ég hef komist að því að vinna við allt þetta er of mikil fyrir einn mann sem stundar fulla vinnu og reynir þar að auki að sinna list sinni. Að halda út vefsvæði sem þessu krefst áhuga og fórnar og eins og sakir standa er ég ekki tilbúinn til að fórna tíma mínum í hendur vanþakklátra aðila sem engann skilning vilja hafa á margbreytileika ljósmyndunar. Sú arfleið sem eldri ljósmyndarar færðu mér í formi ómælds tíma mér og öðrum áhugaljósmyndurum þess tíma til heilla og mig langaði að skila áfram mun því bíða hugsanlegra seinni tíma.

Að svo mæltu kúpla ég mig út úr umræðunni og sný mér að listinni að skapa ljósmyndir.