Grunnurinn liggur í góðri menntun
Til þess að hægt sé að leggja grunn að góðu og faglegu ljósmyndasamfélagi á íslandi þarf að vera til góð grunn undirstoð. Grunnstoð hverrar greinar felast í góðu námi og námsframboði en ekki síður í góðri endurmenntun.
Á tímum eins og við lifum núna þar sem gjaldeyrir er keyptur við dýru verði ætti mönnum að vera enn ljósara en áður hversu mikilvægt er að á heimavelli sé til staðar gott og uppbyggilegt nám.
í þeirri orrarhríðarumræðu um ljósmyndun sem átt sér hefur stað á árinu sem nú er að líða hafa menn talið sem svo að sjálfsagt væri að ljósmyndanám yrði til staðar og ekki þyrfti að tryggja slíkt með einum eða neinum hætti. Það kæmi af sjálfu sér og byggðist á eftirspurn.
Miðað við þróun mála hjá nemum í útstillingu og hönnun við Iðnskólann í hafnafirði má sjá að áhyggjur mínar í þá veru að huga þyrfti betur að námi og tryggja mönnum ekki bara námsframboð heldur einnig þann sjálfsagða rétt að geta útskrifast úr sínu námi, eru á góðum rökum reistar. Ekki má við það una að einstaklingar geti með geðþótta ákvörðun stjórnað þeirri lögbundnu skyldu samfélagsins að halda uppi því námi sem til þarf svo menn geti starfað við það er þá langar til.
Sú hægfara uppbygging sem átt hefur sér stað í THÍ má ekki glatast og í raun þarf að gera mikið betur en gert er nú í dag.
Endurmenntun í ljósmyndun hefur verið af skornum skammti. Hingað streyma þó nú þegar á hverju ári einhverjir flinkustu ljósmyndarar og ljósmyndakennarar heims, en starf þeirra hér á landi byggir þó fyrst og fremst á kennslu til erlendra áhugaljósmyndara en íslenskra fagmanna. Það er synd að ljósmyndarasamfélaginu skuli ekki takast að nýta sér þau tengsl sem nú hafa skapast, fleirum til góða.
Innan ljósmyndarasamfélagsins eru einnig til góðir ljósmyndarar sem sumir hverjir hafa fína hæfileika til að kenna öðrum. Þeir starfa sumir í tengslum við THÍ eða þá í ljósmyndaskólanum.
Íslenskir ljósmyndarar hafa á síðastliðnum 10 árum öðlast víðtækari og meiri reynslu en menn áttu aðgengi að áratugi þar á undan. Þessa reynslu þarf að varðveita og nýta til handa komandi kynslóðum.
Þrátt fyrir miklar og örar tæknibreytingar, sem og breytingar í viðskiptaumhverfi hafa námskeið og endurmenntunarnámskeið ætluð faglærðum ljósmyndurum verið af skornum skammti. Eins er með framhaldsnámskeið fyrir áhugamenn sem ná vilja lengra í list sinni.
Það er fátt eitt meira frískandi en að fara á góðan fyrirlestur ljósmyndara og sjá oft á tíðum nýjan vinkill á gamalli sög. Eftir að hafa sótt námskeið erlendis og fyrirlestra hjá hinum ýmsu ljósmyndurum sem ljósmyndarafélagið hefur flutt til landsins og fengið að fylgjast með hjá kennurum eins og Mary Ellen Mark er mér enn ljósara en áður mikilvægi góðs náms. Þrátt fyrir fyrirlestraröð ljósmyndarafélagsins og allann þann aragrúa sýninga og bóka sem góðu heilli litu dagsins ljós á liðnu ári má gera mun betur en nú er. Gott námskeið er gulli betra.
Ljósmyndanám sem væri þannig uppbyggt að menn gætu hafið nám í THÍ, ljósmyndaskólanum eða sambærilegu og útskrifast þaðan sem fullgildir nemendur en jafnframt haft val um að mennta sig frekar á háskólastigi við hlið iðnhönnunargreina eins og grafískrar hönnunar er það sem fullgilt þjóðfélag á að geta státað af. Með slíkt námsframboði ætti að vera hægt að svara kalli allra þeirra fjölmörgu sviða ljósmyndunar sem gerir lífið svo skemmtilegt og gleður augað við hin ólíkustu tækifæri.
Allir þessir aðilar ,gætu svo hver á sínu sviði, í samvinnu við hin ýmsu fag og áhugafélög, staðið fyrir frekari og betri endurmenntun á hinum ýmsu sviðum er lúta að ljósmyndun og rekstri. Sem og frekari námskeiðum til handa þeim er vilja öðlast meiri skilning á eðli ljósmyndunar án þess endilega að vilja starfa við fagið.
Látum ekki nýtt ár hefjast með kröfu um ekkert nám. Látum það hefjast með kröfu um gott nám, gott námsframboð, góða endurmenntun og síðast en ekki síst þá sjálfsögðu kröfu að nemendur fái lokið sínu námi án vandræða.
Það gefur góða mynd





