Áfram vellur vitleysan.
Umræðan um hinn unga ofurhuga í áhaugasviksemi heldur áfram að hringsnúast sem mest hún má. Nú eru menn komnir aftur til ársins 2004 og í það far sem hún var þá. Þegar hér er komið sögu eru menn farnir að draga fram einstaka fræga aðila og benda á að þeir seú ekki ljósmyndalærðir en líta algerlega fram hjá þremur staðreyndum sem skipta máli.
Flestir þeir sem starfa við ljósmyndun í heiminum og eru ekki ljósmyndalærðir eru með einhverja myndlistarmenntun að baki.
Margir þeirra sem eldri eru eða voru í kerfinu eru með efnafræðimenntun að baki enda skipti slík kunnátta miklu máli.
Í útlöndum er til nokkuð sem heitir aðstoðarmannakerfi. Nokkuð sem virkar sem hið íslenska sveina kerfi, en er ekki þekkt á Íslandi nema í litlu mæli.
Þegar ætlunin er að benda á einhvern sem er ólærður verða menn að þekkja bakgrunn hans afar vel. Þeir verða að geta með ráðum og dáðum sýnt fram á að viðkomandi hafi aldrei gengið í skóla. Ekki hlotið neina myndlistarmenntun og þar að auki ekki unnið sem aðstoðarmenn/lærlingar neinstaðar né "intern" við nokkurskonar "ljósmyndaborð" eða í útgáfu.
Ef þeir sem tala um að ekki þurfi að læra ljósmyndun geta bennt mér á einhvern sem án myndmenntunar nokkurskonar tók upp myndavél einn daginn, hóf að smella af og varð með það sama heimsfrægur skal ég með glöðu geði hætta umræðunni.
Bill Gates var "Drop out" úr skóla og einn af ríkustu mönnum heims. Hversu margir aðrir sem hurfu af skólabrautinni geta sagt hið sama?? Já það er hægt að telja upp þrjá eða fjóra en hvað með alla hina tugþúsund??. Hvar eru þeir? Það er auðvelt að benda á toppinn á ísjakanum. Það er erfiðara að sýna botninn.
Það er staðreynd hvað svo sem hver segir að menntun er máttur. Án menntunar á einhverju stigi komast menn lítið áfram. Það er líka svo að flestir þeir sem leggja orð í belg eru annað hvort fagmenntaðir í annarri grein eða að mennta sig. Það merkilega er að það hvarflar ekki að þeim hinum sömu annað en að mennta sig í þeim greinum og óhikað hakka þeir í alla sem ekki hafa menntun í faginu. Hvar munurinn liggur er ekki gott að segja nema í hroka.
Hvað sem hver segir þá fæðist enginn ljósmyndari. Hvað sem hver segir þá fæðist enginn með kunnáttu um allt í ljósmyndun. Slík kunnátta þarf að lærast. Menn geta fengið þá kunnáttu með því að ganga í skóla og menn geta fengið þá kunnáttu með því að gerast aðstoðarmenn eða sveinar. Vilji menn læra hægt þá taka þeir sjálfsnámsleiðina sem má gera með aðstoð nets og bóka.
Hvaða leið svo sem þeir velja er það staðreynd að eyða verður töluverðum tíma í æfingar í ljósmyndun og eftirvinnslu og ekki minni tíma núna í dag á tölvu öld en áðr fyrr. Það er þar sem skilur að fagmann og fúskara. Fagmaður er á tánnum fúskaranum er sama svo fremi hann selji. Það kostar vinnu, tíma og nám að verða góður ljósmyndari. Það kostar svo enn meira að verða bæði góður ljósmyndari og góður rekstraraðili.
Stóra spurningin í öllu saman er í raun ekki hvort menn eru lærðir eða ekki. Stóra spurningin er í reynd hvað svo? Eða þegar allt hefur verið oppnað hvað þá.
Eiga að gilda reglur um markaðinn og ef svo er hvaða reglur?? Er hægt að eiga von á því að þeir sem brjóta lög og reglur sér til hagnaðar nú, fari frekar eftir lögum og reglum þá. Hver verndar neytendur og hver verndar samkeppnisaðila. Stærsta spurningin er kanski þessi, hvers eiga neytendur að gjalda ef engar eru reglurnar og engin eru lögin þeim til verndar. Ætlum við að innleiða siðfræði í þjóðfélagið eða ætlum við okkur barbarisma. Er markaðsanarkismi virkilega það sem við viljum innleiða á Íslandi eftir þá útreið sem þjóðfélagið fékk við hálfinnleiðingu hans?
Það hefur enginn getað svarað þeirri spurningu minni sem er einföld en þarfnast svars. Ef Ljósmyndun er tekin undan iðnlöggjöfinni og ekki skilgreind sem list hvað þá? Undir hvaða lög heyrir hún og hverjar verða reglurnar. Sé hún skilgreind sem list. Undir hvaða lög heyrir hún og hverjar verða reglurnar.
Meðan hvorugri spurningu er svarað ráðlegg ég engum að hefja ljósmyndarekstur, enda ófært að leggja út í rekstur ef þú veist ekki að einu eða neinu leyti hvernig starfsumhverfið verður næstu ári. Ef þú veist ekki hverjar verða leikreglur þá getur þú ekki búið til viðskiptaáætlun.
Þar til menn fara að ræða þessar grundvallar spurningar er öll umræða hjóm eitt og spólfar í drullupolli sem engu máli skiptir.
Vitleysuvaðalinn í umræðunni má sjá hér: http://www.ljosmyndakeppni.is/viewtopic.php?t=72286&postdays=0&postorder=asc&start=225





