VINNUSTAÐIR ALVÖRU KARLA
VINNUSTAÐIR ALVÖRU KARLA
Ívar Brynjólfsson
Ívar Brynjólfsson á sér margslungnari feril sem ljósmyndari en flestir
kollega hans. Hann hefur lengi tekið skarpar og undurfagrar myndir
fyrir Þjóðminjasafn Íslands og því hljóta margir að reka upp stór augu
þegar þeir sjá myndir hans af vinnustöðum karla. Van Gogh málaði
Sólblóm sín, beggja vegna Madame Roulin, sem rjátlar við talnabandið í
ruggustólnum. Þannig hugsaði hann sér þrískipta altaristöflu sem
prentuð yrði fyrir bretónska sjómenn á Íslandsmiðum til að hafa í
lúkarnum. Allir karlar virðast þurfa sínar altaristöflur og þær finnur
Ívar í skotinu við skrifborðið á verkstæðum smiða og bifvélavirkja.
Þetta eru ekki guðhræddar konur með talnaband, en konur engu að síður.




