Það er alltaf gaman að fá staðfestingu á því að maður sé að gera rétt. Ekki er verra ef sú staðfesting kemur frá manni eins og John Paul Caponigro en í nýlegri grein sinni um svarthvíta prentun kemst hann að sömu niðurstöðu og ég hafði komist að í mínum tílraunum nú síðastliðna mánuði.........mig langar að fræðast nánar
Hahnemühle og Harman fyrirtækið sem stofnað var úr rústum hins gamalgróna Ilford fyrirtækis, hafa tekið höndum saman um framleiðslu á pappír ætluðum fyrir bleksprautuprentara. Pappírstegunirnar verða sjö talsins og verður spennandi að sjá útkomuna frá þessum fyrirtækjum sem hvort um sig eiga langa sögu í gerð pappírsvöru fyrir listamenn. ........mig langar að fræðast nánar